|
21. október 2002 Bumbubúinn mætti kl.15:39 og var 15 merkur og 53 cm
Jæja loksins lét bumbubúinn verða að því að kíkja í heiminn, enda frábært veður, "jólakortasnjór" úti og mamman og pabbinn orðin frekar óþolinmóð.
Bumbubúinn: Það gekk nú samt ekki átakalaust hjá mér að berja heiminn augum, það tók rúma 30 tíma frá fyrstu alvöru verkjunum hjá mömmu þangað til að Eddi læknir setti eitthvað á hausinn á mér og byrjaði að toga og toga og allir sögðu mömmu að rembast og rembast og ég varð alltaf þreyttari og þreyttari. Mér heyrðist pabbi segja við mömmu að hún væri rosa dugleg að rembast og ýta mér út í ljósið en ég varð alltaf þreyttari og þreyttari og loksins þegar það tókst að tosa mér í heiminn þá var ég svo þreytt að ég átti fullt í fangi með að anda, en það var fullt af góðu fólki sem hjálpaði mér þessar fyrstu mínútur. Svo fékk ég mitt eigið herbergi strax, voða lítinn gegnsæjan kassa þar sem er voða heitt og mér líður vel, er bara að hvíla mig og safna kröftum til að mamma og pabbi þurfi nú svolítið að hafa fyrir mér :-) Jæja þangað til næst þá getið þið skoðað myndir af mér og mömmu
ps. eitt svoldíð skrítið, ég á afmæli sama mánaðardag og stórasystir 21, og svo erum við líka báðar fæddar á mánudegi, og byrjuðum báðar á því að fá svona flott herbergi þar sem er rosa heitt og gott að hvíla sig.
|
|
|
22. október |
|
|
Nú veit ég hvað allir heita sem hjálpuðu mér fyrst eftir að ég fæddist, ljósmæðurnar Svana og Ingibjörg og læknarnir Eddi, Magnús og Alexander - og þau voru alveg frábær. Stórasystir tók myndir af mömmu og pabba þegar þau komu í heimsókn, svo var tekin ein mynd af mér en mér brá svo mikið við alla birtuna að þau vildu ekki taka fleiri - en ég veit að það eiga eftir að koma fleiri myndir af mér. Ég er aðeins að hressast, en svaf mest í dag og er ennþá voða þreytt og ætla að hvíla mig betur.
|
|
|
23. október |
|
|
Þegar mamma og pabbi komu í morgun mátti ég fara til þeirra og það var voða notalegt að kúra hjá þeim, mér leið bara svo vel og svaf og hvíldi mig, kíkti samt aðeins á þau til að vita hvort ekki væri allt í lagi með þau. Mér liður alltaf betur og betur og læknarnir eru ánægðir með mig og bráðum fæ ég að prufa að drekka mjólk frá mömmu.
|
|
|
Mamma, pabbi og stórsystir voru lengi hjá mér í kvöld, og ég fékk að lúlla í fanginu á þeim öllum, og lét mér líða voða vel. búinn að prufa snudduna og finnst hún í lagi en langar í eitthvað alvöru í staðinn sem er með mjólk. Svo þegar ég fór aftur í hitakassann þá var ég voða hress og skoðaði pabba og mömmu í krók og kring, en fékk svo alveg nóg af þeim í bili og fór bara að lúlla, enda gott að hvíla sig fyrir morgundaginn því vonandi fæ ég að fara í vöggu og svo getur verið að ég fái smá mjólkurdreitil. |
|
|
24. október |
|
|
Þegar pabbi og mamma komu í morgun beið ég þeirra í vöggu og var alveg glaðvakandi og hress, svo fékk ég að drekka smá mjólk úr sprautu þegar pabbi sat með mig, hún var rosa góð og mig langar í meira. Svo varð ég rosa reið og grenjaði og öskraði á konurnar sem komu til að taka blóðprufu, vildi ekkert vera að láta stinga mig en sofnaði fljótt eftir að þær fóru í fanginu á mömmu. |
|
|
Ég fékk mjólk úr sprautu í hádeginu, og fannst hún rosa góð, fékk svo ömmu í heimsókn með mömmu og pabba en var aðeins of þreytt svo hún sæi mig vakandi. Svo komu mamma og pabbi aftur í heimsókn og þá fékk ég að drekka hjá mömmu og var rosalega sælleg með það, svo þegar þau komu aftur í kvöld þá var ég aðeins of þreytt til að drekka mikið en fékk smá smakk. |
|
|
25. október |
|
|
Vaknaði eldsnemma í morgun hress og klár og eftir svolítinn tíma var mig farið að lengja eftir gamla settinu, hvað vakna þau ekki snemma eins og ég ? svo fór mér að leiðast biðin og kallaði á mömmu og hjúkkurnar hringdu í mömmu og vöktu hana klukkan átta því ég var orðin svo svöng. Mamma kom svo og gaf mér fullt að drekka og ég sofnaði aftur voða södd um níu. Svo voru bæði gömlu kominn til mín þegar ég vaknaði aftur klukkan ellefu og þá var ég aftur orðin svöng og fékk nóg að drekka. Fékk að fara yfir á fæðingardeild eftir um kaffileitið og á bara að vera hjá mömmu þar svo hún geti gefið mér nóg að drekka, er alltaf að hressast meira og meira. Er farinn að drekka rosa mikið og skoða heiminn svona meira, svo er gott að fá sér smá kríu og hvíla sig þegar maður er búinn að fá nóg að drekka. Á myndunum hérna fyrir neðan sjáið þið förin eftir sogklukkuna sem var notuð til að hjálpa mér í heiminn, þetta er búið að lagast mikið á þessum myndum frá því að ég fæddist og ég er ekki lengur með verki. |
|
|
26. október |
|
|
Pabbi fékk að gista hjá okkur í nótt og þetta var fyrsta nóttin okkar pabba og mömmu saman, ég var svolítið að stríða þeim fyrst í stað, aðeins að vakna og athuga hvort þau væru ekki að fylgjast með mér, fá smá athygli frá þeim. Svo var ég rosalega svöng um fimm og fékk mér fullt að drekka og svaf svo alveg til að verða tíu. Þá fóru þau með mig yfir á barnadeild þar sem ég var viktuð og tekinn blóðprufa og ef allt kemur vel út þá má ég fara heim ! ........................... og ég fékk að fara heim. Hérna fyrir neðan eru myndir af mér í rúminu og svo vildu mamma og pabbi varla láta mig frá sér, voru svo glöð að fá mig heim, ég held að ég sé strax byrjuð að spilla þeim, verð örugglega algjör dekurrófa ! |
|
|
|
|
|
|